Hvað er eiginlega að þessum Mormónum?!?

Til að byrja með vil ég taka það fram að ég er mormóni. Ef þú vilt ekki lesa eitthvað jákvætt um mormóna þá mæli ég með að þú leitir eitthvað annað. En ef þú vilt hinsvegar forðast fordóma og heyra báðar hliðar málsins þá mæli ég með að þú lesið þetta blogg. Ég vil jafnframt biðja þig að lesa þetta með það í huga að ég er venjulegur einstaklingur þrátt fyrir það að vera trúuð.

 Ég hef verið að hugsa um það hvernig það að tilheyra Kirkju Jesú Krist hinna Síðari Daga Heilögu (mormónakirkjunni) hefur haft áhrif á félagslíf mitt. Ég var í sama Grunnskóla öll tíu árin, mér var mun oftar strítt yfir málfræðinni minni en trúnni minni á þeim tíma. Ég var öll fjögur árin í sama menntasólanum og var eiginlega ekkert strítt þar... jú auðvita voru einstaka erfiðar reynslur þar sem ég fékk að heyra hluti eins og "það verða allir að drekka í þessu partýi, þannig að þú mátt koma, en þú verður þá að drekka.... eða vera úti á svölum allt kvöld" bara svona eins og gengur og gerist þegar maður er unglingur og allir verða að vera svo töff. En ég átti yfirleitt mjög góða vini sem settu hvorki út á mig nér trú mína. 

Svo er ég orðin "fullorðin" og les íslensk blogg sem eru yfirfull á mormónahatri.. frá fólki sem ekki einusinni skilur þessa trú! 

Ef þú ætlar að fá upplýsingar um Toyota bíl þá er örugglega sniðugast að skoða heimasíðu Toyota og að fara niður í umboð Toyota með spurningarnar þínar frekar en að fara í önnur umboð og á aðrar síður til að reyna að finna eitthvað þar. Þú finnur eflaust réttustu og bestu upplýsingarnar hjá þeim sem þú vilt vita meira um. Ef þær reynast svo vera rangar þá færðu eflaust að vita af því fyrr en seinna.

Ef þú vilt vita um mormóna þá mæli ég með að þú talið við virkan meðlim kirkjunnar, farir á heimasíðu kirkjunnar eða jafnvel, ef þú þorir, talir við trúboða kirkjunnar... þeir eru ekki hérna til að drepa fólk! þeir eru hérna til að kenna og svara spurningum. Ef þú svo finnur að þú hefur ekki áhuga lengur, þá er afskaplega einfalt að losna við þá, þú segir bara "herðu, ég hef ekki áhuga, þig megið fara og kenna öðrum núna og hætta að eiða tímanum ykkar í mig". Ekki erfitt!

Ég efast um að það fyrsta sem fólk hugsi þegar það sér mig sé "já vá hún hlítur að vera mormóni!" ég tek fullan þátt í samfélaginu, ég vel að drekka ekki og reykja ekki og mér lýður bara mjög vel með það. Ég stunda ekki kynlíf fyrir hjónaband, það eru svosem algjörlega persónulegar upplýsingar og fullt af fólki sem stundar ekki kynlíf af mysmunandi ástæðum sem oft hafa ekkert með Guð eða trú að gera! Ég er bara venjuleg mannsekja, ekki talandi niðrandi um samkynhneigða eða predikandi um heimsendi og æpandi á syndgara heimsins! ég er venjuleg mannsekja, trúin er stór hluti af lífinu mínu og ég tala um hana eins og hver annar maður mundi tala um sitt hobbý eða það sem þau hafa áhuga á við sína vini. Ég bíð fólki í kirkju eins og hver annar mundi bjóða vinum sínum og félögum á fótboltaleikinn sinn eða tónleikana hjá hljómsveitinni sinni eða kór eða bara hvað sem er! Ég held bara að heimurinn sé búinn að gera svo lítið úr Guði að það er ekki mannsæmandi að lifa trúuðu lífi lengur, furðulegt að stunda ekki kynlíf, drekka ekki eða reykja vegna trúarlegra ástæðna, ekki leyfilegt að tala um trúmál án þess að þræta og algjörlega bannað að bjóða fólki í kirkju nema maður vilji vera stimplaður sem klikkhaus og ofsatrúarmannsekja!

Fyrir þá sem vilja vita sannleikann um Kirkju Jesú Krists hinna Síðari Daga Heilögu  (mormónakirkjuna) þá bendi ég á www.mormonar.is  eða fyrir þá sem lesa og skilja ensku vel þá er www.mormon.org mjög fín síða þar sem þú getur chattað við meðlim kirkjunnar og spurt spurninga án nokkurra skuldbindinga (eins og bara svona venjulega ef þú ert að tala við meðlim kirkunnar eða trúboða hennar). 

njóttu vel.

Kirkja Jesú Krists er stundum þekkt sem mormónstrú, mormónar, mormóni, mormón.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Einarsson

Gott framtak Unnur. Greinilega margir góðir hlekkir með efni um mormóna. Verulega athygliverð hugmynd, þetta með föstuna og mæðrastyrksnefnd.

Ólafur Einarsson, 18.3.2009 kl. 08:15

2 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Ef ég vil fá upplýsingar um Toyota bíl er kannske best að fara í umboðið eða tala við verksmiðjuna. Ef ég vil hins vegar fá hlutlausar upplýsingar um Toyota, er framleiðandinn síðasti aðilinn sem ég leita til.

Eins er það með önnur fyrirtæki, svo sem mormónakirkjuna. Ef ég vil fá hlutlausar upplýsingar, þýðir lítið að tala við einstakling innan kirkjunnar, enda varla von á gagnrýni úr þeirri átt. Þó er kirkjan ekki fullkomin frekar en aðrar kirkjur. 

Ég vil taka það fram að nú þekki ég persónulega ágætis mormóna (sem og furðu marga fyrrverandi mormóna) og hef haft mikið gaman af því að tala við öldungana (ég hef reyndar aldrei skilið hversvegna svo virðulegum titli er skellt á þessa piltunga sem vart er farið að spretta grön). 

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 23.3.2009 kl. 09:56

3 Smámynd: Unifer

Það er ágætt að fá upplýsingar um kirkjuna frá hlutlausum aðila, en best að taka öllu með fyrirvara og athuga hjá réttu aðilunum hvort að þessar upplýsingar séu réttar. Það er ekki auðvelt að lifa samkvæmt stöðlum kirkjunnar eins og heimurinn er í dag, enda margt sem heimurinn telur vera í lagi sem stangast á við kenningar kirkjunnar. Kannski þess vegna sem er mikið að fyrrverandi meðlimum. 

En ég trúi því að þetta séi endurreist kikja Krists eins og hún var stofnsett af Frelsaranum sjálfum á tímum nýja testamenntisins, þar af leiðandi eru kenningar kirkjunnar fullkomnar, en eins og Biblían segir þá er fólkið ekki fullkomið. Við reynum okkar besta, en við erum mannleg.

Endilega athugaðu allar hliðar málsins, talaðu við meðlimi kirkjunnar, fyrrverandi meðlimi, eða bara hvern sem er, en vertu viss um að þú sért með réttar upplýsingar. Við erum ekki að reyna að selja neitt, við erum bara að deila með öðrum því sem kirkjan kennir og svo er það fólks að finna hvað það vill gera varðandi þessar kenningar, lifa eftir þeim eða ekki, þar af leiðandi er engin ástæða fyrir okkur að reyna að selja neitt og þar sem við erum ekki að selja neitt er engin ástæða að reyna að fegra eða sykra það sem við trúum á. Þess vegna held ég að það séi nokkuð seif að leita uppl. beint til meðlima kirkjunnar og trúboða hennar.

Ég hvet þig þess vegna til þess að gera það og ef þú finnur eitthvað þar sem á við þig þá hvet ég þig til þess að taka þeim ráðleggingum sem standa í hinu almenna bréfi Jakobs í Biblíunni, 1.kapítula, 5.versi og biðja til Guðs varðandi sannleiksgildi þessarra kenninga.

Ég vil bera því vitni að ég hef gert þetta, og ég veit af öllu mínu hjarta að Guð lifir, að Kristur er Frelsari okkar og að Kirkja Jesú Krists hinna síðari daga heilögu er sönn, að innan hennar eru kenningar Krists og að Mormónsbók er annað vitni um Frelsarann Jesú Krist til þess skrifuð að leiða menn til Krists.

 http://www.youtube.com/watch?v=QtEQ8Tjr2EI&feature=channel

Unifer, 30.3.2009 kl. 00:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband